Níu úr Haukum á úrtaksæfingum KSÍ

Alls hafa sjö stelpur í 3. flokki kvenna hjá Haukum verið valdar til að taka þátt í úrtaksæfingum hjá KSÍ í mars og apríl.

Þær Berghildur Björt Egilsdóttir, Elín Björg Símonardóttir, Erla Sól Vigfúsdóttir, Mikaela Nótt Pétursdóttir og Viktoría Diljá Halldórsdóttir voru valdar til að taka þátt í úrtaksæfingum U16 dagana 12. og 13. apríl nk.  Um er að ræða æfingar fyrir UEFA Development Tournament sem fram fer í Króatíu 6. – 12. maí n.k. Landsliðsþjálfari U16 kvenna er Jörundur Áki Sveinsson.

Þá tóku þær Berglind Þrastardóttir, Elín Klara Þorkelsdóttir, Mikaela Nótt Pétursdóttir og Viktoría Diljá Halldórsdóttir þátt í úrtaksæfingum U15 í lok mars. Lúðvík Gunnarsson er landsliðsþjálfari U15 kvenna.

Þeir Arnar Númi Gíslason og Óliver Steinar Guðmundsson tóku einnig þátt í úrtaksæfingum í lok mars.  Lúðvík Gunnarsson er landsliðsþjálfari U15 karla.

Knattspyrnudeild Hauka óskar fyrrgreindum iðkendum innilega til hamingju með valið og það er ljóst að framtíðin er björt í Haukum.

Áfram Haukar!

Elín Klara Þorkelsdóttir

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…