Haukar – F.H:
Stórleikur sumarsins verður þriðjudaginn 6. júlí kl 19:15 þegar F.H-ingar komar í heimsókn hingað á Ásvelli. Þetta er leikur sem við ætlum okkur þrjú stig, nú er að mæta og styðja stelpurnar. Áfram Haukarar
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Fréttir úr fótboltanum
Stórleikur sumarsins verður þriðjudaginn 6. júlí kl 19:15 þegar F.H-ingar komar í heimsókn hingað á Ásvelli. Þetta er leikur sem við ætlum okkur þrjú stig, nú er að mæta og styðja stelpurnar. Áfram Haukarar
Mánudaginn 5. Júlí kl 19:15 tökum við á móti Fylki á Vodafonevelli í Pepsideild karla. Það er mikilvægt að allir mæti og styðji okkar menn því með sigri komumst við úr fallsæti. Markmið sumarsins eru óbreytt, að halda sér uppi. Það eru gríðarlega góð batamerki á leik liðsins og fyrsti sigur okkar í deildinni mun…
Það voru engin mörk skoruð í leik Hauka og Fram í Pepsi-deild karla sem fram fór á Laugardalsvellinum í gær. Haukar fengu þar með sitt fjórða stig í deildinni í sumar og öll hafa þau komið á útivelli. Í byrjunarliði Hauka voru hvorki fleiri né færri en 8 uppaldir leikmenn Haukamenn, allir að undanskyldum Daða…
Næstkomandi miðvikudag 30. júní mæta stelpurnar okkar í Kópavoginn og mæta þar Breiðablik kl 19:15. Stelpurnar mæta fullar sjálfstrausts eftir frábæran sigur á Aftrueldingu í bikarkeppninni á laugardaginn síðasta. Nú mætum við öll og styðjum stelpurnar til sigurs. Áfram Haukar
Haukastúlkur komust áfram í 8 liða úrslit Visabikar kvenna með 2-0 sigri á Aftureldingu. Haukastúlkur hófu leikinn af miklum krafti og komust í eitt núll í fyrri hálfleik með marki Rebeccu Wise. Þegar seinni hálfleikur hófst var eins og Haukastúlkur ætluðu að halda fengnum hlut og drógu sig til baka. Eftir nokkrar snarpar sóknir Aftureldingar…
Leikur Fram og Hauka í Pepsi deild karla fer fram á Sunnudaginn 27. júní á Laugardalsvelli kl 16. Mætum öll og styðjum okkar menn og verum 12. maðurinn sem okkur sárlega vantar. Það vantaði herslumuninn síðast, nú löndum við fyrsta sigrinum. Áfram Haukar!!!!
Næst komandi laugardag kl 14. munu Haukastelpurnar taka á móti Aftureldingu í 16 liða úrslitum Visabikarsins hér að Ásvöllum. Allir að mæta, því um hörkuleik verður að ræða. Áfram Haukar!!!!!!!
Sam Mantom hefur nú snúið aftur til síns heimalands og mun byrja að æfa með West Bromwich Albion á ný eftir að hafa dvalið hjá Haukum í tæpa tvo mánuði. Honum tókst að skora tvö mörk á tíma sínum hér, það fyrra með skalla á móti Breiðablik og hitt skoraði hann með hnitmiðuðu skoti í…
Það voru Haukar sem voru yfir í hálfleik 2-0 gegn Grindavík í kvöld á Vodafone-vellinum, en það voru hinsvegar Grindvíkingar sem fóru með sigur af hólmi eftir 90 mínútna leik, 3-2. Arnar Gunnlaugsson kom Haukum á bragðið með flottu marki eftir góðan undirbúning frá Sam Mantom sem var að spila sinn síðasta leik fyrir Hauka…
Haukar eiga fimm stráka sem valdir hafa verið til að taka þátt í úrtaksæfingum hjá U17 liðs karla. Þjálfari er Gunnar Guðmundsson. EFtirtaldir leikmenn hafa verið valdir: Magnús Gunnarsson markmaðurGunnar Örvar StefánssonÞórður Jón JóhannessonAron J PéturssonArnar Aðalgeirsson Æfingar eru sem hér segir:Lau 26/6 Tungubakkar kl 11:00 – 12:30 (leikmenn tilbúnir kl 10:45)Sun 27/6 Tungubakkar…