Haukastúlkur áfram í VISA bikar

HaukarHaukastúlkur komust áfram í 8 liða úrslit Visabikar kvenna með 2-0 sigri á Aftureldingu.

Haukastúlkur hófu leikinn af miklum krafti og komust í eitt núll í fyrri hálfleik með marki Rebeccu Wise. Þegar seinni hálfleikur hófst var eins og Haukastúlkur ætluðu að halda fengnum hlut og drógu sig til baka. Eftir nokkrar snarpar sóknir Aftureldingar þá tóku Stúlkurnar okkar aftur völdin á vellinum.

Stelpurnar spiluðu eftir það mjög vel og uppskáru mark sem Dagbjört Agnarsdóttir skoraði. Auk þessara tveggja marka þá áttu stelpurnar fjölda færa í leiknum en því miður þá enduðu 3 þeirra í tréverkinu. Glæsilegur leikur hjá stelpunum.