Sam: Ég mun sakna Íslands

Sam hefur nú yfirgefið Hauka og snúið aftur til EnglandsSam Mantom hefur nú snúið aftur til síns heimalands og mun byrja að æfa með West Bromwich Albion á ný eftir að hafa dvalið hjá Haukum í tæpa tvo mánuði. Honum tókst að skora tvö mörk á tíma sínum hér, það fyrra með skalla á móti Breiðablik og hitt skoraði hann með hnitmiðuðu skoti í vinstra hornið gegn Keflavík. Við tókum stutt viðtal við hann og þetta hafði hann að segja um þann tíma sem hann eyddi hjá Haukum.

,,Dvöl mín á Íslandi er búin að vera öðruvísi en ég er vanur á Englandi en það var einmitt ástæðan af hverju ég kom til Íslands, fá eitthvað öðruvísi til að láta mig upplifa það að vera einn á báti og upplifa samkeppni. Mér finnst við vera búnir að vera óheppnir í leikjum en kannski var heppnin bara ekki með mér í þetta skiptið. En ég hef virkilega notið mín hérna og ég hef hitt margt skemmtileg fólk, en ég held að allir vilji vera Englendingar,“ sagði Sam og hló.

,,Einnig fór ég með fjölskyldunni minni að sjá þetta fræga eldfjall sem hefur gert allt vitlaust í Evrópu,“ bætti hann við en hann kallar fólkið sem hann gisti hjá á Íslandi fjölskylduna sína.

,,Þar sem að ég vissi að Haukar væru nýkomnir upp í úrvalsdeild vissi ég að þetta yrðu tveir erfiðir mánuðir. Liðið var gott og þeir buðu mig strax velkominn í hópinn. Allir voru virkilega einbeittir að því að gera vel og vinna leiki. Það vantaði aldrei stuðninginn frá áhorfendunum sama hvað gerðist inná vellinum, sem mér fannst alveg frábært, kannski eitthvað sem Englendingarnir mega taka sér til fyrirmyndar,“ sagði hann og bætti svo við að hann hafi notið sín í Pepsi-deildinni.

,,Já ég naut mín virkilega vel að spila upp á stig og sæti í deildinni. Fyrstu tvo leikina var stemningin virkilega góð, kannski ekki stærsti áhorfendafjöldi sem ég hef spilað fyrir en þeim tókst að hvetja okkur til að fá stig gegn KR.“

,,Gæðin í Pepsi-deildinni myndi ég líkja við aðra deildina í Englandi en hraðinn var virkilega góður svo að þetta var allt betra en ég bjóst við,“ sagði hann um íslenska boltann en sá hann eitthverja leikmenn sem eiga erindi í enska boltann?

,,Mér finnst enskur bolti allt öðruvísi en ég hef spilað á móti mörgum ágætum leikmönnum á meðan ég hef verið hér. Ég hef séð nokkra sem standast þær kröfur að spila á Englandi.“

,,Ég veit ekki hvert stefnan er sett fyrir næsta tímabil. Ég mun æfa með aðalliðinu meira svo að það mun augljóslega gera mig að betri leikmanni. En ég myndi helst vilja fara á láni til eitthvers liðs á Englandi til að öðlast meiri reynslu. En hver veit, kannski maður verði heppinn og fær leik í ensku úrvalsdeildinni,“
sagði Sam um framhaldið en er enginn séns á að hann komi aftur og spili fyrir Hauka á næstu leiktíð?

,,Hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Það fer allt eftir því hvað gerist á komandi leiktíð en ég get ekki spáð fram í tímann. En ég vil bara þakka öllum fyrir stuðninginn og fyrir frábærar móttökur.“

,,Ég mun klárlega mæla með því fyrir 17-18 ára leikmenn WBA að koma til Íslands og öðlast meiri reynslu. Það er frábært að koma úr enska umhverfinu og vera vitni að eitthverju nýju. Ég mun einungis hafa góða hluti að segja um dvöl mína þegar ég hitti félagana, ég er að fá stanslausar spurningar þessa stundina,“ sagði hann en kannski fáum við að sjá annan leikmann WBA í framtíðinni í Haukabúningnum ef Sam stendur við orð sín og mælir með okkur. En hvað á hann eftir að sakna mest frá Íslandi?

,,Ég mun eflaust sakna mest fólksins sem ég hef verið með, þeir eru nú vinir mínir að eilífu og allir hafa verið virkilega góðir við mig, ef þeir koma til Englands þá mun ég glaður endurgjalda greiðann. Ég á eftir að sakna Íslands töluvert. Samt sem áður mun ég ekki sakna þess að sofa í dagsbirtu og hlakka til að fá góðan svefn um nóttina. Það verður gott að sjá tunglið á ný,“
segir hann og skilar svo nokkrum vel völdnum orðum til stuðningsmannanna.

,,Stuðningsmennirnir voru frábærir, alltaf að styðja okkur hvenar sem er og hvar sem er. Það sem mér fannst skemmtilegast var án efa þegar þeir öskruðu Sam the man 13, þeir vita hvað ég er að tala um,“
sagði Sam að lokum en greinilegt að hann hefur skemmt sér vel í Hafnarfirðinum og viljum við þakka honum fyrir allt sem hann gerði á þessum tæpum tveim mánuðum hjá Haukum.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…