Bjarni Frostason ráðinn markmannsþjálfari handknattleiksdeildar.

bjarni frostasonHandknattleiksdeild Hauka hefur samið við Bjarna Frostason um að vera markmannsþjálfari deildarinnar. Bjarni mun verða í þjálfarateymi mfl. karla og og kvenna í vetur og sjá um að halda markmönnum deildarinnar á tánum.
Bjarni var með karlaliðinu eftir áramót í fyrra og má segja að þá hafi merkmenn mfl. karla farið í gang og oft lokað markinu eins og gert var í úrslitakeppninni í fyrra, sælla minninga.

Bjarna þarf vart að kynna fyrir Haukafólki og handboltaáhugamönnum. Bjarni var markmaður Hauka í nokkuð mörg ár og var þá einn allra fremsti markmaður landsins og var einnig landsliðsmarkaður á þeim tíma.

Þessi ráðning sýnir enn og aftur þann mikla metnað sem er hjá handknattleiksdeild Hauka og ljóst er að bjart er framundan hjá deildinni.