Bikarsaga karlaliðs Hauka í handboltanum

Coca Cola bikarinn 2015Annað kvöld, föstudag, verður sannkallaður stórleikur í undanúrslitum Coca Cola bikars karla þegar Haukar mæta ÍBV í Laugardalshöll kl. 20:00. Þriðja árið í röð er leikið eftir nýju fyrirkomulagi þar sem undanúrslitin eru einnig leikin í Laugardalshöll og er þetta annað árið í röð sem Haukastrákar taka þátt. Áður var það þannig að aðeins úrslitaleikurinn var leikinn í Höllinni en Haukamenn hafa unnið bikarinn 7 sinnum í 8 tilraunum.
Fyrst unnu Haukar bikarinn árið 1980 þegar þeir unnu KR 22 – 20 í úrslitaleik en þetta var aukaleikur um titilinn eftir að liðin skildu jöfn 18 – 18. Þessi leikur var jafn og spennandi allan leikinn en Haukar sigu framúr í lokin og lönduðu sætum sigri. Árni Hermannsson var hetja Hauka í leiknum en hann var markahæstur með 6 mörk auk þess að eiga fjöldan allan af línusendingum á Ingimar Haraldsson sem skoraði 5 mörk. En þess má geta að Ingimar er faðir Matthíasar Árna fyrirliða Haukaliðsins í dag.
Haukar þurftu síðan að bíða lengi eftir næsta bikartitli en árið 1997 komust þeir í bikarúrslit og mættu þar KA í hörkuleik. Haukar voru yfir í hálfleik 14 – 12 og náðu síðan að halda þeirri forystu út leikinn og unnu á endanum 26 – 24 og þar með annan bikarmeistaratitil karlaliðs Hauka. Þess má geta að í undanúrslitum það árið unnu Haukar FH og skoruðu sigurmarkið með ævintýralegum hætti þar sem Aron Kristjánsson sendi inni í teiginn á Jón Frey Egilsson sem setti boltann í netið. Markahæstir Haukamanna í úrslitaleiknum voru þeir Rúnar Sigtryggsson með 7 mörk og Gústaf Bjarnason sem skoraði 5 en Bjarni Frostason átti einnig stórleik í markinu. Í liði Hauka þetta árið var einnig annar faðir núverandi leikmanns en það er Petr Baumruk faðir Adam Hauks en einnig var Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari og fyrrverandi þjálfari Hauka í liði Hauka þetta árið.
Næst komust Haukar í bikarúrslit árið 2001 þar sem þeir mættu HK. Í leiknum voru Haukamenn með yfirhöndina allan leikinn og voru þeir yfir í hálfleik 14 – 9 og unnu að lokum sigur 24 – 21. Markahæstur Haukamanna í leiknum var Rúnar Sigtryggsson með 7 mörk en á eftir honum með 5 mörk komu Jón Karl Björnsson, og núverandi aðstoðarþjálfari Hauka, Óskar Ármannsson.
Árið eftir komust Haukar aftur í bikarúrslit og að þessu sinni var það lið Fram sem var mótherjinn. Sá leikur var spennandi fyrstu mínúturnar en um miðja fyrri hálfleik tóku Haukar við sér og leiddu í hálfleik 16 – 9 og unnu að lokum öruggan tíu marka sigur 30 – 20. Halldór Ingólfsson átti stórleik og skoraði 14 mörk. Þar með var fjórði bikarmeistaratitill Hauka staðreynd og það í jafnmörgum úrslitaleikjum.
Fyrsta og eina tap Haukamanna í bikarúrslitum kom árið 2006 en þá léku þeir gegn liðið Stjörnunnar. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik voru Haukamenn yfir, 11 – 9, en í seinni hálfleik skellti Roland Eradze markmaður Stjörnunnar í lás í markinu og tryggði sigur Stjörnunnar 24 – 20 en hann varði 27 skot í leiknum. Í leiknum var skotnýting og þar með markaskor Hauka skelfilegt og enduðu 4 leikmenn markahæstir með einungis 3 mörk. En þess má geta að í liði Stjörnunnar þetta árið var núverandi þjálfari Haukamanna, Patrekur Jóhannesson.
Haukamenn komst ekki aftur í bikarúrslit fyrr en árið 2010 og þá var mótherjinn Valur. Leikurinn var jafn og spennandi í fyrri hálfleik og voru Haukar yfir að honum loknum 9 – 8. Fyrri hluti seinni hálfleiks var líka jafn en um miðjan seinni hálfleik, þegar staðan var 14 – 14, breyttu Haukamenn um vörn og unnu lokakaflann 9 – 1 og leikinn 23 – 15. Í þessum leik var maður leiksins markvörður Hauka, Birkir Ívar Guðmundsson, en hann varði 23 skot. Markahæstur Haukamanna í leiknum var Guðmundur Árni Ólafsson með 7 mörk og á eftir honum kom Björgvin Hólmgeirsson en Björgvin leikur í dag með ÍR sem spilar gegn Aftureldingu í hinum undanúrslitaleiknum. Meðal leikmanna Haukamanna í leiknum voru þeir Tjörvi Þorgeirsson og Elías Már Halldórsson en Elías má því miður ekki spila með Haukum í bikarnum þar sem að hann hefur nú þegar leikið með Akureyri í bikarkeppninni í ár og á Íslandi má aðeins leika með einu félagi í sömu bikarkeppni. Einnig var Óskar Ármannsson, aðstoðarþjálfari Hauka í dag, aðstoðarþjálfari í leiknum.
Árið 2012 voru Haukamenn mættir aftur í Höllina en þá léku þeir gegn Fram. Haukamenn komu grimmir til leiks í þeim leik og áttu Frammarar eiginlega aldrei séns í leiknum. Haukar voru yfir 17 – 11 eftir fyrri hálfleik og unnu að lokum góðan sigur 31 – 23. Markahæstir Haukamanna í leiknum voru Sveinn Þorgeirsson og Stefán Rafn Sigurmannsson með 8 mörk hvor en Aron Rafn Eðvarðsson átti flottan leik í markinu og varði 18 skot. Í liði Hauka þetta árið voru 4 leikmenn sem eru í leikmannahópi liðsins í dag: Tjörvi Þorgeirsson, Einar Pétur Pétursson, Árni Steinn Steinþórsson og fyrirliðinn Matthías Árni Ingimarsson.
Í fyrra komust Haukar í fyrsta skiptið í Höllina eftir að fyrirkomulaginu var breytt. Þá léku þeir á föstudagskvöldi gegn nágrönnunum sínum úr FH en sá leikur var hörkuleikur þar sem FH var yfir í hálfleik 14 – 13. Í byrjun síðari hálfleiks tók Þórður Rafn Guðmundsson til sinna mála og skoraði 5 mörk í röð og kom Haukum í forystu sem Haukar létu aldrei af hendi og tryggðu sér sæti í úrslitum með góðum sigri, 30 – 28. Markahæstir Haukamanna í leiknu voru Sigurbergur Sveinsson með 7 mörk og Árni Steinn Steinþórsson og Þórður Rafn með 6 mörk hvor, einnig var Giedrius Morkunas fínn í markinu og varði 10 skot og var með 34% markvörslu. Daginn eftir var svo keppt til úrslita en þá var mótherjinn ÍR. Þetta var hörku handboltaleikur þar sem vörn og markvarsla var í fyrirrúmi og lítið skorað. Leikurinn var nánast jafn á öllum tölum í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 11 – 11. ÍR-ingar komu betur út í seinni hálfleik og komust í 15 – 13 en þá tók við 6 – 0 kafli hjá Haukamönnum og þeir breyttu stöðunni í 19 – 15. ÍR-ingar neituðu að gefast upp og náðu að jafna í 21 – 21 þegar nokkrar mínútu voru eftir. Síðustu mínútur leiksins voru spennuþrungnar í meira lagi þar sem bæði lið fengu nokkur tækifæri til þess að skora en að lokum voru það Haukamenn sem náðu að skora síðasta mark leiksins og unnu leikinn 22 – 21. Markahæstir Haukamanna í leiknum voru Sigurbergur Sveinsson með 6 mörk og Elías Már Halldórsson og Tjörvi Þorgeirsson með 4 mörk hvor. Í marki Hauka átti Giedrius Morkunas stórleik og varði 18 skot og var með 47% markvörslu.

Sagan er því þannig að karlalið Hauka hefur komist í bikarúrslit 8 sinnum og unnið bikarinn í 7 sinnum en Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar. Verði Haukamenn bikarmeistarar í ár verður Haukar það félag sem oftast hefur orðið bikarmeistar í karlaflokki en nú eru Haukar og Valur jafnir með 7 titla hvort félag. Næst síðasta skrefið í þeirri baráttu verður annað kvöld, föstudag, þegar Haukamenn mæta ÍBV kl. 20:00 í Laugardalshöllinni en upphitun hefst á Ásvöllum kl. 17:30 og rútur fara síðan í Höllinn kl. 19:00 og taka þær fólk einnig til baka.
Mætum öll í rauðu og styðjum Hauka til sigurs í bikarnum. Áfram Haukar!

Höf. Herbert Ingi Sigfússon, aðstoð Sigurjón Sigurðsson.