Bikarmeistarar!

HaukarHaukar urðu í dag bikarmeistarar karla í handbolta þegar þeir lögðu Fram í úrslitaleik 31-23. Eins og tölurnar gefa til kynna var sigur okkar manna mjög sannfærandi og raunar sást frá byrjun í hvað stefndi, okkar strákar voru einfaldlega mun ákveðnari og betra liðið á vellinum. Á pöllunum áttu Haukastuðningsmenn sannkallaðan stórleik líka og var gaman að sjá hve margir mættu og studdu strákana til sigurs!

Til hamingju allt Haukafólk með þennan frábæra áfanga fyrir félagið!