10. flokkur leikur til bikarúrslita

Kristján Leifur Sverrisson og félagar spila í Vodafone-höllinni í dagStrákarnir í 10. flokki verða í eldlínunni í dag þegar þeir mæta Njarðvík í úrslitaleik bikarkeppni 10. flokks í körfubolta. Leikið er í Vodafone-höll Valsmanna og hefst leikurinn kl. 12.15.

Haukastrákar sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar hafa spilað fangavel á tímabilinu og ætla sér að hampa bikartitlinum en þeir töpuðu bikarúrslitaleiknum á síðasta tímabili í hörkuleik.

Heimasíðan hvetur alla Haukamenn að koma í Vodafone-höllina og hvetja strákana til sigurs.

Áfram Haukar!

Leið Hauka í úrslit:
16-liða úrslit Haukar-Fjölnir-b 87-47
8-liða úrslit Haukar-Fjölnir 86-33
4-liða úrslit Haukar-KR 63-54