Báðir leikir Hauka og hollenska liðsins OCI-Lions í 1. umferð EHF-keppninnar í handknattleik verða spilaðir á heimavelli Hauka í Schenkerhöllinni að Ásvöllum.
Fyrri viðureign liðanna verður föstudaginn 13. september og síðari leikurinn daginn eftir. Sigurliðið úr þessari rimmu mætir portúgalska liðinu Benfica í 2. umferðinni