Baráttu sigur á Víkingum

HaukarHaukar unnu góðan sigur í miklum baráttuleik við Víking R. á laugardaginn og eru eftir sigurinn í 2. sæti deildarinnar. Baráttan um úrvalsdeildarsæti að ári er því áfram í fullum gangi!

Anton Ingi Leifsson, fréttaritari fotbolta.net var á vellinum og skrifaði þessa líku fínu umfjöllun um leikinn sem við látum fylgja hér.

Haukar fóru i annað sætið á markatölu eftir frábæran heimasigur gegn Víking nú fyrr í dag. Hilmar Geir Eiðsson tryggði sigurinn á 88. mínútu með marki eftir svokallað klafs í teig Víkinga. Svekkjandi fyrir gestina, en heimamenn fögnuðu eins og óðir menn. 

Fyrsta markið kom á 13. mínútu. Eftir ágætis sókn fékk Dofri Snorrason boltann úti á vinstri væng, tók boltann með sér inn og snéri boltann frábærlega fyrir markið. Boltinn endaði beint á ,,pönnunni“ á Viktori Jónssyni sem skallaði boltann smekklega í netið. Dekkningin hjá Haukum í þessu marki var algjört grín, en einnig hafði Dofri fáránlega mikinn tíma til að velja sér sendingarleið úti á vængnum. 

Eftir markið sóttu Víkingar og sóttu. Sigmar í markinu hjá Haukum varði tvisvar til þrisvar virkilega vel og bjargaði því að Víkingarnir juku ekki forskotið. Viktor Jónsson var hættulegur í tvígang, en eins og fyrr segir gerði Sigmar virkilega vel í markinu. 

Þá var komið að Haukum. Þeir sóttu í sig veðrið þar sem leið á og á 35. mínútu kom jöfnunarmarkið. Ásgeir Þór Ingólfsson átti í baráttu við þrjá leikmenn Víkings út við hornfána. Hann tók boltann af Tómasi Guðmundssyni og náði að snúa hann virkilega vel af sér, lagði boltann á Hilmar Geir sem var kominn í flott hlaup. Hann var með tvo Víkinga á eftir sér, Kjartan Dige Baldursson fór síðan í Hilmar Geir sem varð til þess að hann missti jafnvægið. Erlendur Eiríksson, frábær dómari leiksins, dæmdi víti. Andri Steinn Birgisson fór á punktinn, en lét Ingvar verja frá sér – hann hirti hins vegar frákastið og setti hann í netið. 

Út hálfleikinn var síðan bara barningur, en meðal annars átti Magnús Páll skalla sem Dofri Snorrason bjargaði á línu. Staðan 1-1 í hálfleik. 

Mikill barningur var úti á vellinum í síðari hálfleik. En á 76. mínútu byrjaði veislan á ný. Helgi Valur vann þá boltann af Robin Nijman, sendi flotta sendingu á Hilmar Geir sem skaut framhjá markinu á ótrúlegan hátt. Þarna átti Hilmar Geir að gera betur. Tveimur mínútum síðar átti Hafsteinn Briem skot í stöngina og stuttu síðar bjargaði Hjalti Már Hauksson á línu frá Hafsteini Briem. 

Á 88. mínútu kom svo sigurmarkið. Helgi Valur sendi þá háa sendingu inn í teiginn og þar kom Hilmar Geir á siglingunni, eftir klafs náði hann að athafna sig og skoraði með vinstri fótarskoti, sem fór undir Ingvar Kale í markinu. Mikill fögnuður hjá Haukum, skiljanlega – en þetta voru gífurlega mikilvægir þrír punktar fyrir Haukana. 

Hauka-liðið var einfaldlega betri aðilinn í þessum leik, fyrir utan stundafjórðung í kringum mark Víkings í fyrri hálfleik. Kristinn Jens Bjartmarsson hefur oft átt betri dag í vörn Víkings, en hann og Ívar Örn Jónsson áttu í vandræðum með spræka sóknarmenn Hauka. 

Með sigrinum fóru Haukar í annað sætið á markatölu, með 34 stig, jafnmörg og Fjölnir sem er í 3. sæti, en tveimru stigum á eftir Grindavík sem sitja einir á toppnum. Víkingar eru hins vegar í fimmta sæti með 30 stig.

Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://www.fotbolti.net/news/24-08-2013/umfjollun-hilmar-geir-hetja-hauka-i-mikilvaegum-sigri#ixzz2d4eyYO7w 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…