Akureyri – Haukar í beinni á Ásvöllum annað kvöld kl. 19.00

HaukarFyrir okkur sem komumst ekki norður á morgun flytja Haukar norðrið til okkar því Hauka TV ætlar til Akureyrar svo við hin fáum að fylgjast með þessum mikilvæga leik í N1 deild karla. Leikurinn hefst kl. 19.00 annað kvöld, fimmtudag.
Hjá Haukum er sterkur félagsandi og að sjálfsögðu ætlum við öll að vera saman á Ásvöllum þar sem leikurinn verður sýndur á stórum skjá. 
Veitingasalan verður opin svo við getum betur notið leiksins.
Fyrir leikinn eru 8 stig eftir í pottinum. Haukar eru sem stendur í fjórða sæti með 19 stig en Akureyri er á toppnum með 28 stig. Það er deginu ljósara að hvert stig skiptir Hauka miklu máli til að styrkja stöðu sína inn í úrslitakeppnina en þangað fara fyrstu fjögur liðin eftir að deildarkeppninni lýkur.

Sjáumst á Ásvöllum annað kvöld  –  ÁFRAM HAUKAR!