Fyrir viku síðan mættust liðin í Garðabænum en nú er komið að því að liðin mætist í Schenkerhöllinni í fyrsta leik síðasta þriðjungs deildarinnar. Stelpurnar voru flottar í síðasta leik og hafa verið á góðu róli eftir áramót. Þær eiga því sannarlega skilið stuðning Haukafólks og því um að gera að fjölmenna í Schenkerhöllina á morgun, þriðjudag, kl. 19:30. Áfram Haukar!