Nú erum við kominn upp að veggnum fræga, en við þekkjum það og kunnum að höndla það. KA spilaði vel fyrir norðan og sigraði, en það gefur þeim ekkert í næsta leik, ekki eitt einast mark og það eru jú mörkin sem telja. Haukar unnu fyrsta leikinn mjög sannfærandi og þá áttu norðanmenn ekki sjens. Staðan 1-1 og oddaleikur framundan.
Sumir tala nú um að öll pressan sé á Haukum, að við ‘eigum’ að vinna en þannig er málið ekki, heldur ‘ætlum’ við að vinna. Þess vegna ætlum við öll að mæta á sunnudaginn og við tökum vel á móti norðanmönnum og hleypum þeim í sumarfrí.
Það er öruggt að strákarnir okkar mæta tilbúnir í leikinn og þeir ætla sér ekkert annað en sigur og við Haukastuðningsmenn ætlum líka allir að mæta og skemmta okkur. Við mætum með bros á vör, stillum strengina og saman styðjum við félagið okkar áfram til sigurs.
Áfram Haukar
.