Tveggja marka tap

Stelpurnar spiluðu í kvöld leik gegn Fram í Safamýri. Stelpurnar spiluðu mjög vel í fyrri hálfleik og var vörnin mjög góð. Staðan í hálfleik var 13-10.

Í hálfleik virtist eitthvað gerast því stelpurnar komu engan vegin tilbúnar inn á völlinn í síðari hálfleik. Vörnin gekk ekki og sóknarleikurinn var í molum. Fjöldi sendinga fór uppí palla og þær hittu ekki á rammann. Þegar bjallan gall fóru Framstelpur með sigur af hólmi 28-26.

Önnur úrslit í deildinni voru:
Grótta – HK 28-17
Valur – Akureyri 33-12

Næsti leikur stelpnanna verður ekki fyrr en á miðvikudaginn eftir tæpan hálfan mánuð en stelpurnar sitja hjá í næstu umferð. Næsti leikur er miðvikudaginn 26. september gegn Stjörnunni á heimavelli klukkan 20:00