Síðasti leikur strákanna á sunnudag

Á sunnudaginn klukkan 16:00 leika strákarnir í meistaraflokki sinn síðasta leik í vetur. Þá taka þeir á móti Val en Valur á möguleika á að hampa Íslandsmeistaratitlinum.

Þessi leikur verður síðasti leikur Palla okkar Ólafssonar og en hann mun færa sig í önnur verkefni á vegum deildarinnar að tímabili loknum. Að sjálfsögðu ætlum við að kveðja karlinn með sæmd og fjölmenna á Ásvelli. Viggó, sem hefur verið aðstoðarþjálfari Palla síðustu leiki, mun einnig láta af störfum eftir leikinn og munum við að sjálfsögðu kveðja hann einnig.

Palli hefur verið í þjálfarateymi meistaraflokks karla síðustu 6 keppnistímabil, eða frá því haustið 2001. Palli var aðstoðarþjálfari Viggós okkar, sem nú er aðstoðarþjálfari hjá Palla, frá 2001 þar til í desember 2003. Þá lét Viggó af störfum og Páll tók alfarið við. Síðan þá hefur Palli verið aðalþjálfari.

Frá því Palli og Viggó tóku við liðinu haustið 2001 hafa unnist samtals fjórir Íslandsmeistaratitlar í meistaraflokki karla, tveir bikarmeistaratitlar, einn deildarbikarmeistaratitill og 5 deildarmeistaratitlar. Samtals hafa því Palli og Viggó skilað 12 bikurum í hús á Ásvelli. Gerir aðrir betur!! Liðið sigraði í deildarkeppninni öll tímabilinu, að tveimur síðustu tímabilum undanskildum.

Fjölmennum á Ásvelli, styðjum strákana okkar til sigurs og kveðjum Palla og Viggó með sæmd!!

ÁFRAM HAUKAR!!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…