Allir á völlinn á miðvikudaginn!!!!
HAUKAR – STJARNAN MIÐVIKUDAG KL 20:00 Á ÁSVÖLLUM!! ALLIR Á VÖLLINN!!
Á miðvikudaginn fer fram gífurlega mikilvægur leikur hjá stelpunum. Leikurinn er í 8 liða úrslitum SS bikarkeppninnar og því er annað hvort að duga eða drepast. Stelpurnar okkar töpuðu fyrir Stjörnunni á laugardaginn og við ætlum ekki að láta það gerast aftur. Nú verða allir að mæta á völlinn og styðja stelpurnar okkar til sigurs í þessum mikilvæga leik. Allir á völlinn!!!
