Stelpurnar í undanúrslit!!

Stelpurnar okkar eru komnar í undanúrslit SS bikarkeppninnar. Þær léku í kvöld á móti Stjörnunni í 8 liða úrslitum. Liðin mættust á laugardaginn í leik í deildinni þar sem Stjarnan hafði betur 21-15. Stelpurnar okkar höfðu því harma að hefna.

Stelpurnar okkar byrjuðu betur. Staðan eftir 5 mínútur var 4-2. Þá kom frekar slakur kafli hjá okkar stelpum og eftir 15 mínútur var staðan orðin 5-7. Stelpurnar okkar náðu svo að jafna 8-8 þegar 18 mínútur voru liðnar  og komast yfir 11-10 og staðan í hálfleik var 13-12.

Í síðari hálfleik skiptust liðin á að hafa forystu. Eftir 5 mínútna leik í síðari hálfleik var staðan 14-13 og eftir 11 mínútur 15-16 Stjörnunni í vil. Þegar um 15 mínútur voru liðnar voru okkar stelpur komnar yfir 18-16. Leiknum lauk svo með sigri okkar stelpna 24-23 eftir að Helga varði skot á síðustu sekúndum leiksins.

Markahæst í liði okkar var Ramune Pekarskyte með 10 mörk. Sandra skoraði svo 4, Harpa 3, Hanna, Nína og Erna Þráins 2 mörk og Lilja Björk 1 mark.

Markahæst í liði Stjörnunnar Rakel Dögg Bragadóttir með 7 mörk, Aline Patrace skoraði 6 mörk, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 3 mörk, Anna Bryndís Blöndal, Elísabet Gunnarsdóttir og Ásdís Sigurðardóttir 2 mörk og Kristín J Clausen 1.

Dómarar leiksins voru Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson.

Stelpunar okkar eru því komnar í undanúrslit. Liðin sem eru eftir í pottinum ásamt okkar stelpum eru ÍBV, Valur ogGrótta.

ÁFRAM HAUKAR!!!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…