Sigur í fyrsta leiknum hjá stelpunu

Í gær fór fram fyrsti leikur stelpnanna okkar í DHL deild kvenna. Leikurinn var gegn liði Akureyrar á Ásvöllum. Leikurinn fór ágætlega af stað hjá okkar stelpum og komust þær í góða forystu. Um miðjan síðari hálfleik náðu Akureyrarstelpur að jafna 8-8. Okkar stelpur náðu þá ágætis kafla aftur og var staðan í hálfleik 17-12.
Í síðari hálfleik var aldrei spurning um hvort liðið færi með sigur af hólmi. Forustan sem stelpurnar okkar höfðu náð í fyrri hálfleik jókst og endaði með góðum sigri 39-23. Ramune og Hanna voru markahæstar með 8 mörk, Harpa skoraði 6, Erna Þráins 4, Erna Halldórs og Nína 2 og Tinna Ósk, Herdís og Ingibjörg eitt mark hver. Markahæst í liði Akureyrar var Guðrún Helga Tryggvadóttir með 6 mörk.
Næsti leikur stelpnanna er á laugardaginn en þá heimsækjum við granna okkar í FH. Leikurinn hefst klukkan 16:00 í Kaplakrika. Mætum öll og styðjum stelpurnar okkar.
ÁFRAM HAUKAR!!