FH-Haukar 16-liða úrslit SS bikars
Stelpurnar okkar lögðu leið sína í Krikann í kvöld og unnu glæsilegan sigur á FH 34-30 í 16-liða úrslitum SS bikarsins.
Leikurinn var jafn í byrjun, en þegar um 10 mín voru liðnar kom góður kafli hjá stelpunum okkar og breyttu þær stöðunnu úr 4-3 í 6-12. Í hálfleik var staðan 10-18. Í seinni hálfleik náði FH að minnka muninn en komst þó aldrei nær en 3 mörk og unnu stelpurnar okkar öruggan sigur og stigu þar með fyrsta skrefið í átt að Höllinni.
