Hópferð til Kiel ???
Þar sem mikið hefur verið spurt um hópferð á leik í Meistaradeildinni er könnun í gangi hér á heimasíðunni. Um er að ræða Hópferð að hætti Hauka til Kiel helgina 6./7. nóvember.
Reikna má með að verðið verði í kringum 48.000 og er þá innifalið flug, gott hótel og transport til og frá flugvelli.
Skráið ykkur sem fyrst og muna að skrá síma og/eða netfang svo hægt sé að hafa samband. Ath að þetta er könnun en ekki bindandi skráning svo endilega látið áhuga ykkar í ljós.
