Nú rétt í þessu var gengið frá samningi við Pál Ólafsson um þjálfun meistaraflokks karla.
Pál Ólafsson þarf vart að kynna, hann kom til Hauka 1991 og spilaði með mfl.karla við góðan orðstýr. Hann hefur verið aðstoðarþjálfari mfl.karla síðustu þrjú tímabil.
Við óskum Palla góðs gengis við ný störf hjá félaginu.