Barcelonaferðin – Fundur ofl.

Nú er allt að verða klárt varðandi ferðina okkar til Barcelona.

Brottför verður frá Keflavík fimmtudaginn 20. nóv. kl. 9:00 með flugi FI808. Fjórum tímum seinna verður lent á flugvellinum Gerona sem er skammt frá Barcelona. Þaðan er rúta á hótelið Hotel Pere IV. Heimför verður á sunnudaginn 23. nóv. kl. 19:00 að staðartíma. Rúta frá hóteli fer ca kl. 17:00. Tímasetning á rútunni verður kynnt nánar síðar.
Við stefnum á skoðunarferð um Barcelona eftir hádegi á föstudeginum. Leikurinn er kl. 16:30 á laugardeginum.

Komið er fast verð og kostar pakkinn 47.500 kr. Eins og áður hefur komið fram er innifalið flug, skattar, akstur til og frá flugvelli á Spáni, gisting í 3 nætur ásamt morgunmat. Einnig verða íslenskir fararstjórar frá ÚU. Síðast en ekki síst verða allir skemmtilegu og frábæru FerðaHaukarnir á staðnum.

Fundur verður á Ásvöllum miðvikudaginn 5. nóvember kl. 18:30 (á undan bikarleik strákann við KA sem hefst kl. 20:00). Þar verður ferðin kynnt nánar og allar upplýsingar veittar. Eins kynnir Sparisjóður Hafnarfjarðar “FERÐALÁN SPH”, nýjung sem getur lækkað ferðakostnað og/eða auðveldað greiðslur.

Hægt verður að ganga frá staðfestingargjaldinu kr. 5.000 á fundinum.
Eins er hægt að ganga frá staðfestingargjaldinu hjá Bergþóru Jónsdóttur á skrifstofu aðalstjórnar á Ásvöllum, sem er opin alla virka daga frá kl. 12:00 til kl. 16:00 nema miðvikudaga þá er opið frá kl. 8:00 til kl. 12:00. Síminn er 525 8700 og fá samband við Beggu.

Greiða verður staðfestingargjaldið í síðasta lagi 9. nóvember.

Minnum á að fundurinn er kl. 18:30 á miðvikudaginn.