Haukar-Selfoss mfl. karla

Strákarnir unnu auðveldan sigur á Selfyssingum í RE/MAX-deildinni á Ásvöllum í kvöld, 39-27. Leikurinn var jafn fyrstu mínútur en eftir að jafnt var 4-4 skildu leiðir og strákarnir okkar sigu framúr og aldrei var spurning um hvoru megin stigin lentu. Staðan í hálfleik var 18-12 og í seinni hálfleik juku strákarnir forskotið og unnu góðan sigur. Leikurinn var rólega leikinn, þ.e. án hörku og slagsmála og ekkert var um brottvísanir fyrr en eftir miðjan seinni hálfleik. Þrátt fyrir yfirburði Hauka höfðu gestirnir gaman af leiknum og eiga þeir hrós skilið fyrir það.

Markahæstur var Ásgeir Örn með 10 mörk og Dalius var með 7 mörk.