Íslandsmótið að byrja
Fyrsti leikurinn á Íslandsmótinu hjá strákunum er á morgun kl. 20.00 á Ásvöllum við Stjörnuna. Svo er það Sao Bernardo í Portúgal í Evrópukeppninni á laugardag. Strákarnir fara síðan í Kópavoginn og mæta HK fimmtudaginn 25. sept. kl. 20.00 og fá hitt Kópavogsliðið, Breiðablik í heimsókn á Ásvelli, sunnudaginn 28. sept. kl. 19.15.
Hjá stelpunum byrjar mótið föstudaginn 19. sept. er þær taka á móti GróttuKR á Ásvöllum kl. 20.00. Miðvikudaginn 24. sept. eiga þeir útileik við Fram kl. 20.00 og fá Val í heimsókn á Ásvelli sunnudaginn 28. sept. kl. 17.00.
Við hvetjum alla að vera duglega og mæta á leikina.
Áfram Haukar.
