Sigur á Reykjavíkur Open
Fyrsti titilinn er í höfn hjá stelpunum er þær unnu ÍBV í úrslitaleik á Reykjavíkur Open í dag.
Í morgun unnu þær FH 16-12 og tryggðu sér þar með sæti í úrslitaleiknum við ÍBV. Leikurinn við ÍBV var æsispennandi, jafnt var eftir venjulegan leiktíma 24-24, eftir fyrri framlengingu var ennþá jafnt 30-30 og seinni framlenging endaði 34-34. Þá var komið að bráðarbana og ÍBV byrjaði með boltann. Vörnin hélt hjá Haukum og góð markvarsla í kjölfarið og okkar stelpur fóru í sókn og skoruðu gullmark.
Frábær sigur eftir spennandi leik. Til hamingju stelpur með fyrstu „dollu“ vetrarins.
