Meistarakeppni HSÍ – mfl.karla
Haukar og HK leika í Meistarakeppni HSÍ, þ.e Íslandsmeistarar gegn Bikarmeisturum, fimmtudaginn 4.september kl 20:00 á Ásvöllum.
Leikurinn verður góðgerðarleikur og mun ágóði leiksins renna í félagið Kraftur, sem var stofnað sem stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein. Bikarinn sem leikið er um var gefinn af afkomendum Sveins Björnssonar, fyrrum forseta ÍSÍ.
Geir Sveinsson, sonur Sveins og fyrrum þjálfari meistaraflokks Vals, mun afhenda verðlaun í leikslok.
Miðaverð kr. 500 fyrir fullorðna og kr. 250 fyrir börn. Við hvetjum alla til að mæta og sýna góðu málefni áhuga.
