Haukar-Valur Essódeild kvenna
Stelpurnar unnu öruggan sigur á Val á Ásvöllum í dag 29-24. Sigurinn var í raun aldrei í hættu, Valur náði einu sinni að jafna og það var í stöðunni 1-1. Haukar komust í 4-1, 7-4, 13-7 og staðan í hálfleik var 13-9. Stelpurnar byrjuðu seinni hálfleikinn ágætlega en hikstuðu svo aðeins og náðu gestirnir að minnka muninn í 16-14 en nær komust þær ekki því okkar stelpur sigu aftur framúr, komust í 21-15, 25-17 og 28-19. Hanna var markahæst með 11 mörk, mörg hver eftir glæsileg hraðaupphlaup. Ótrúlegur hraði á stelpunni á stundum.
