4. umferð Evrópukeppninnar
Það verður dregið í 4 umferð á morgun. Það ætti að verða ljóst um kl. 11:30 hverjum við mætum. Til gamans þá vorum við að slá út lið sem var „rankað“ númer 13 í Evrópukeppni Bikarhafa. (Við vorum númer 34 af 36 liðum!) Þau lið sem við gætum fengið í næstu umferð eru í „ranking order“:
A. D. C. Ciudad Real frá Spáni
C.BM. Ademar Leon frá Spáni
TBV Lemgo frá Þýskalandi
SC Pick Szeged frá Ungverjalandi
Osiguranje Cetinje frá Júgóslavíu
GOG frá Danmörk
Kombinat Prilep frá Makedóníu
Redbergslid frá Svíþjóð
GOG tóku vini okkar í Metkovic Jambo 33:20 í gær. Það vantaði reyndar 4 sterka í Jambo.
