Conversano-Haukar
Staðan eftir 10 mín. leik er 4-5 fyrir okkur.
Eftir 16 mín. er staðan 7-7.
Þetta lítur vel út á Ítalíu, staðan eftir 25 mín er 9-12 fyrir okkur.
Þá er kominn hálfleikur á og staðan 15-12 fyrir okkur. Við höfum ekki miklar fréttir hverning leikurinn hefur spilast, vitum þó að Dóri hefur skorað 7 mörk og Robertas 3.
Seinni hálfleikur er nú ca hálfnaður og staðan 19-19.
Nú eru um 8 mín. eftir og róðurinn farinn að þyngjast. Staðan er 24-23 fyrir Conversano. Nú stöndum við saman og sendum góða strauma til strákanna.
Jæja, þá er leiknum lokið og spurning hvort straumarnir frá okkur hafi gert gæfumuninn þegar á reyndi, en leikurinn fór 27-27 og jafnaði Aron rétt fyrir leikslok.
Frábær árangur hjá strákunum okkur. Fyrirfram var reiknað með mjög erfiðum leik og satt að segja átti maður alveg eins von á stóru tapi. En strákarnir stóðust svo sannarlega prófið og náðu glæsilegu jafntefli.
Halldór var markahæstur með 10 mörk, Robertas með 5, Aron 4, Þorkell 3, Aliaksandr 2, Jón Karl, Ásgeir Örn og Andri með 1 hver. Birkir Ívar með 15 varin. Strákanir voru allir að spila vel og áttu frábæran leik því andstræðingarnir voru mjög góðir.
Glæsilegur árangur hjá ykkur strákar og nú er bara að taka „vel“ á móti ítölum er þeir heimsækja okkur um næstu helgi og hvetjum við alla Hauka og alla handboltaunnendur til að fjölmenna á Ásvelli og hvetja strákana okkar til áframhaldandi þátttöku í Evrópukeppninni.
