Haukar-Fram mfk.kv.
Eftir rúmlega hálfsmánaðar hlé á Essó deidlinni tóku stelpurnar okkar á móti Fram dömum á Ásvöllum í dag. Þær höfðu frumkvæðið allan leikinn, staðan í hálfleik var 15-9 og lauk leiknum með stórsigri 34-21. Hanna var markahæst með 13 mörk, Harpa var með 8, Inga Fríða 5, Ragnhildur 4, Björk 2, Ingibjörg og Sonja með 1 hvor.
