Verður hópferð til Barcelona
Eftir dráttinn í Evrópukeppninni kom það í ljós að stórliðin Haukar og Barcelona etja kappi saman um miðjan næsta mánuð. Eftir að þetta kom í ljós hefur sími handknattleiksdeildar ekki stöðvast vegna fyrirspurna um ferð á leikinn ytra. Nokkrir áhugasamir félagar í Haukum um heim allan hafa sett sig í samband við ýmsa aðila og eru að reyna að koma á fót ferð fyrir áhangendur Haukaliðsins og Barcelonaliðsins. Á næstu dögum mun það koma í ljós hvort að íslenski flugflotinn hefur bolmagn til að flytja hina fjölmörgu Haukamenn á Spánarstrendur. Í framhaldi af því viljum við minna á Evrópukvöldið 27. okt. þar sem að æfðir verða flamingodansar og drukkið shangria. Vonandi verður hægt að kaupa miða á hófið og Barcelonaferðina í pakka, þ.e. tveir fyrir einn. Fylgist með heimasíðunni á næstu dögum, fréttir munu birtast þar, fyrst af öllum miðlum landsins.
