Fréttir frá Póllandi kl. 10.00
Allt frínt að frétta af strákunum. Allur aðbúnaður er til fyrirmyndar. Þeir fóru á æfingu í morgun kl. 8 að ísl. tíma og gekk hún mjög vel. Íþróttahúsið er fínt, ekki nein skítahola. Þeir eru á fundi núna, síðan er matur og svo leikurinn kl. 15 (ísl. tími). Reiknað er með um 2000 manns á leikinn.
Strákarnir eru sem sagt allir í fínu formi, eina sem var að, er að kallinn með trefilinn og hattinn var að kafna, því blússandi hiti er á svæðinu, sól og heiðskýrt.
