Sara Odden til liðs við Hauka

Handknattleiksdeild Hauka hefur samið við sænsku handknattleikskonuna Söru Odden um að spila með liðinu næstu tvö keppnistímabil.
Sara sem er hávaxin vinstri skytta var við æfingar með liðinu í byrjun mánaðarins og þótti standa sig vel, en hún lék á síðasta tímabili með Tyresö í sænsku 2. deildinni. Sara kemur til landsins á næstu dögum og mun væntanlega spila sinn fyrsta leik í Haukabúing gegn HK í annari umferð Olísdeildar kvenna.