Haukaliðin með sigra inn í bikarfrí

Nú er komið stutt frí á deildarkeppni meistaraflokka Hauka í handbolta vegna þess að um næstu helgi fer fram Final 4 í bikarnum. Því miður eru Haukaliðin ekki með í þetta skiptið og eru þau því á leið í stutt frí frá leikjum en öll liðin fóru á góðum nótum inn í fríið.

Meistaraflokkur karla fóru á góðum nótum inn í bikarfríið en þeir mættu Stjörnunni síðasta fimmtudag. Úr varð hörkuleikur þar sem að Stjarnan var með frumkvæðið framan af en undir lok fyrri hálfleiks gáfu Haukastrákar aðeins í en jafnt var þó í hálfleik 14 – 14. Haukar byrjuðu seinni hálfleik af krafti og náðu fljótlega 3 – 4 marka forskoti sem dugði þeim út leikinn þótt að Stjarnan hafi komið með áhlaup á síðustu mínútunum þá lönduðu Haukar sigri 29 – 28. Adam Haukur  átti stórleik fyrir Hauka en hann skoraði 8 mörk líkt og Heimir Óli sem flottur að vanda. Næsti leikur Hauka er laugardaginn 16. mars þegar boðið verður upp á tvíhöfða í Schenkerhöllinni en strákarnir eiga seinni leikinn kl. 18:00 á móti ÍR.

Strákarnir í U-liðinu eru að gera flotta hluti í Grill 66 deildinni en þeir mættu ÍBV um helgina í hörkuleik. Jafnræði var á liðinum nánast allan leikinn en svo um miðbik seinn hálfleiks gáfu ungu Haukastrákarnir í og unnu að lokum 31 – 27 sigur. Guðmundur Bragi Ástþórsson átti stórleik fyrir Hauka en hann skoraði 12 mörk og á eftir honum komu Hallur Kristinn, Gunnar Dan og Kristófer Máni allir með 4 mörk. Ungu strákarnir eru nú í 2. sæti deildarinnar með 19 stig úr 14 leikjum og eru þeir 2 stigum á undan Víkingi og Val U en Fjölnir er á toppi deildarinnar með 25 stig. Næsti leikur hjá U-liðinu er fimmtudaginn 14. mars þegar boðið verður upp á Hafnarfjarðarslag í Kaplakrika kl. 20:00.

Meistaraflokkur kvenna fór líka á góðum nótum inn í bikarfríið með sigri á KA/Þór fyrir norðan 24 – 23 síðastliðinn þriðjudag eftir að hafa verið yfir allan leikin en stelpurnar voru mikilir klaufar að vinna ekki leikinn stærra því að þær voru yfir allan leikinn og voru þær mestan hluta leiksins 3 – 4 mörkum yfir. Markahæst Haukastúlkna í leiknum var Berta Rut með 7 mörk og á eftir henni kom Ramune með 5 en einnig átti Ástríður fínan leik í markinu. Með þessum sigri styrktu stelpurnar stöðu sína í 3. sæti deildarinnar með 23 stig úr 17 leikjum 4 stigum á eftir Fram í 2. sæti deildarinnar og 4 stigum á undan ÍBV sem er í 4. sætinu. Nú eru 4 leikir eftir af deildarkeppninni en næsti leikur hjá stelpunum er þriðudaginn 12. mars kl. 19:30 þegar þær mæta HK í Digranesinu. Næsti heimaleikur er svo laugardaginn 16. mars kl. 16:00 þegar að Valur kemur í heimsókn í fyrri leik tvíhöfða í Schenkerhöllinni.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…