Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

Handknattleiksdeild Hauka hefur samþykkt beiðni Hákonar Daða Styrmissonar um riftun á samningi milli Hauka og leikmannsins. Ástæður uppsagnar Hákonar Daða eru af persónulegum toga og mun tilkynning um ástæðu þess birtast í kjölfarið. Það skal tekið fram að báðir aðilar skilja í fullri sátt og þakkar Handknattleiksdeild Hauka Hákoni Daða fyrir farsæla veru hjá okkur og við óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.