Ingvar hættir með kvennaliðið

Ingvar Guðjónsson hefur ákveðið að stíga til hliðar sem aðalþjálfari mfl. kvenna í Dominos deildinni. Ingvar hættir á toppnum, sem þjálfari Íslandsmeistaranna og er það mikill missir fyrir liðið en leit stendur að nýjum þjálfara.

Ingvar hefur verið afar farsæll þjálfari hjá deildinni og hefur þjálfað flestar stelpurnar í mfl. frá því að þær voru mjög ungar og hefur náð þeim árangri að vinna allt sem hægt er að vinna sem þjálfari, bæði með yngri flokka og svo með mfl.
Ingvar hefur einnig gert nokkrar stelpur að A landsliðsmönnum eins og t.d. Þóru, Dýrfinnu og Rósu og er ljóst að skarð hans verður vandfyllt.

Ingvar er einstaklega fær þjálfari og frábær persóna sem hefur gert mikið fyrir starf kkd. á síðustu árum. Kkd. Hauka vonast til að halda honum áfram sem þjálfara yngri flokka og þakkar fyrir frábært starf sem þjálfari mfl. kvenna síðustu árin.