Íslandsmeistarar Olísdeildar karla verða krýndir á fimmtudag – miðasala er hafin!

Stemmningin í stúkunni getur haft sitt að segja í oddaleik

UPPFÆRÐ FRÉTT: Fimmtudaginn 19. maí fer fram oddaleikur í einstæðu úrslitaeinvígi Hauka og Aftureldingar um Íslandsmeistaratitil Olísdeildar karla. Leikurinn fer fram í Schenkerhöllinni að Ásvöllum og hefst kl. 20.00. Miðasala er þegar hafin ólíkt því sem tilkynnt var í gær, þriðjudag. Frítt er fyrir 15 ára og yngri, auk ellilífeyrisþega. Húsið opnar kl. 18.00 á fimmtudaginn og verður boðið upp á andlitsmálningu og hægt að kaupa ýmsar veitingar. Stuðningsfólk liðanna tveggja er hvatt til að mæta snemma, tryggja sér miða og skapa einstaka umgjörð um þennan hreina úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn. Þetta úrslitaeinvígi hefur boðið upp á allt það besta sem handboltinn hefur upp á að bjóða og síðustu tveir leikir til að mynda hafa farið í framlengingu, jafnvel tvær, og úrslitin ráðist á ögurstundu á lokasekúndunum. Nú er komið að því að úrslit ráðist og aðeins eitt þessara tveggja frábæru liða getur staðið uppi sem sigurvegari og lyft bikarnum á loft. Við hvetjum allt Haukafólk til að leggjast á árarnar með strákunum, vera þeirra áttundi maður á pöllunum og upplifa sjálft spennuna sem fylgir rimmu sem þessari.

Við bendum félögum í Haukum í horni á að þar sem um oddaleik er að ræða gilda Hauka í horni skilríkin ekki sem aðgöngumiði á þennan leik.

ÁFRAM HAUKAR!