Patrekur Jóhannesson hættir sem þjálfari meistaraflokks Hauka í vor

Patrekur Jóhannesson
Patrekur Jóhannesson

Patrekur Jóhannesson hefur nýtt sér ákvæði í samningi sínum við handknattleiksdeild Hauka og mun því ljúka störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá félaginu að loknu yfirstandandi tímabili. Verkefni Patreks hjá landsliði Austurríkis munu færast í aukana í kjölfar nýs fimm ára samnings hans við austurríska handknattleikssambandið sem  tekur gildi í haust. Þau verkefni munu krefjast enn frekari viðveru utan landsteinanna á komandi misserum. Af þeim sökum verður Patreki ekki kleift að sinna þjálfun meistaraflokks Hauka samfara landsliðsþjálfuninni. Handknattleiksdeild Hauka hefur verið verið afar ánægð með störf Patreks sem hafa einkennst af mikilli fagmennsku og heilindum. Framundan eru spennandi vikur þar sem úrslit munu ráðast í Íslandsmótinu og mun Patrekur að sjálfsögðu stjórna liði Hauka af fullum krafti á þeirri vegferð.

Handknattleiksdeild Hauka þakkar Patreki fyrir gott samstarf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…