Bikarmeistarar 2014 – Superman er Haukari

Bikarmeistarar í Cocal Cola bikarkeppninni árið 2014Haukar og ÍR buðu upp á sannakallaðan draumaúrslitaleik í dag þegar leikið var til úrslita í Coca Cola bikar karla. Jafnt var í hálfleik en Haukar náðu góðu taki á leiknum um miðbik seinni hálfleiks þegar þeir komust yfir 19 – 15. ÍR liðið er þekkt fyrir annað en uppgjöf og náði að vinna upp forskot okkar manna en Haukar voru sterkari á lokametrunum og unnu glæsilegan eins marks sigur, 22 – 21.
Einar Pétur skoraði sigurmarkið en enn og aftur var þetta sigur liðsheildarinnar, glæsilegt og til hamingju drengir.

Það er ekki úr vegi að minnast á framlag áhorfenda en þeir fjölmenntu í Höllina og létu vel í sér heyra. Einnig var stórkostlegt að fá Tólfta Haukarann á svæðið en sá hópur jók kraftinn til muna og hjálpaði Jóni Gunnari og félögum til að skapa ótrúlega flotta umgjörð á pöllunum. Einnig bera að þakka þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóginn sem og starfsfólki Ásvalla. Þetta er frábær hópur og erum við hluti af þessari flottu heild sem heitir HAUKAR.

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…