N1-deildin rúllar af stað í kvöld: Haukar fara í Vodafonehöllina

HaukarN1-deildin í handbolta hefst á nýjan leik í kvöld eftir langt hlé vegna Evrópukeppninar í handbolta. Strákarnir okkar eiga leik gegn Val og fer hann fram í Vodafonehöllinni á Hlíðarenda kl.19.30. Af leikmannahópnum er allt gott að frétta, engin á við meiðsl að stríða og allir hafa strákarnir æft vel í hléinu.

Haukar hafa tvisvar sinnum áður mætt Völsurum í vetur og unnið í bæði skiptin, fyrst 34-28 í Schenckerhöllinni og 32-21 í Vodafonehöllinni, síðari leikurinn var í Eimskipsbikarnum en sá fyrri í deildinni. Valur situr í 6. sæti deildarinnar með 11 stig, þremur stigum frá Akureyri og Fram sem eru í næstu sætum fyrir ofan. Fjögur efstu liðin í deildinni fara í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn í vor þannig að leikurinn er feykilega mikilvægur fyrir Valsara ætli þeir sér að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninni.

Að sjálfsögðu er leikurinn einnig mjög mikilvægur fyrir okkur Haukamenn því með sigri treystum við stöðu okkar enn frekar á toppi deildarinnar. Það verður því svo sannarlega hart barist í Vodafonehöllinni í kvöld og er allt Haukafólk kvatt til að fjölmenna og styðja strákana til sigurs! 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…