Frétt af heimasíðu Grosswallstadt

HaukarSverre Jakobsson fagnar eftir dráttinn í þriðju umferð EHF bikarsins, þar sem hann fer ásamt TVG Grosswallstadt til heimalandsins, Íslands, í enda nóvember.  Stjórnendur liðsins eru heldur ekki óánægðir „Áhugavert og gerlegt verkefni“ segir framkvæmdastjórinn Uli Wolf.

Áður en ferðin til Íslands verður að veruleika helgina 27/28 nóvember er heimaleikur okkar spilaður 20/21 sama mánaðar.  TVG Grosswallstadt lék síðast á alþjóðlega sviðinu fyrir þremur árum.  Á þeim tíma duttum við út í fyrstu umferð með minnsta mögulega mun gegn Úkraínska liðinu HC Portovik, þar sem færri mörk skoruð á útivelli réðu úrslitum. „Við viljum standa okkur betur nú en síðast“ upplýsir Wolf.  Til þess að komast áfram núna er mikilvægt að sýna áræðni og halda einbeitingu.  Andreas Kunz er sammála „ Íslendingarnir eru baráttuglaðir og skipulagt lið“ segir fyrirliðinn.

Haukar Hafnarfirði eru með marga reynslumikla leikmenn.  Markmaðurinn Birkir Guðmundsson spilaði með Tus-N-Luebbecke og Einar Örn Jónsson spilaði með bæði GWD Minden og SG Wallau-Massenheim.  Ásamt þeim spilar einnig með liðinu bróðir Einars Hólmgeirssonar, fyrrum leikmans TVG Grosswaldstadt.  Leiktíðarnar 2004/05 og 2005/06 spiluðu Haukar í Champions League.  Lengst komst liðið í evrópukeppninni leiktíðina 2000/01 þegar liðið náði í 4 liða úrslit.  Þetta árið sigraði liðið H.C. Conversano frá Ítalíu örugglega til að geta mætt TVG Grosswaldstadt.

„Í heimaleiknum verðum við að ná öllu okkar besta fram, til að eiga möguleika í útileiknum“ segir Uli Wolf sem er ekki aðeins ánægður með hið áhugaverða verkefni gegn Haukum heldur einnig með það hversu auðvelt er að skipuleggja ferðalagið.  „við hlökkum til evrópukeppninnar, en núna er okkar áhersla á Bundesliguna, síðan munum við undirbúa okkur fyrir mótherjann“  Eftir stuttan tíma mun það koma í ljós hvort heimaleikurinn verður 20 eða 21 nóvember.

 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…