Haukar lögðu Fram með einu marki í Safamýrinni í kvöld, 32-33 í hörkuleik. Þetta er í fjórða sinn sem strákarnir sigra með einu marki frá áramótum en helmingi leikja þeirra í deildinni hefur lokið með þeim hætti það sem af er liðið ári. Þegar mánuður er uns úrslitakeppnin hefst og strákarnir eiga fjóra leiki eftir í deildinni þá leiða þeir deildina með sex stigum. Akureyri er í öðru sæti með 22 stig en liðið tapaði gegn Gróttu um helgina. Valur og HK skildu jöfn en Hlíðarendaliðið er í fimmta sæti um þessar mundir sem þykir ekki ásættanlegt á þeim bænum á meðan að Kópavogsliðið er í því þriðja. FH-ingar misstu af kjörnu tækifæri til að komast í þriðja sætið í kvöld með því að tapa á heimavelli gegn Stjörnunni en liðið hefur aðeins unnið einn leik af síðustu fjórum. Næsti leikur Hauka er fimmtudaginn á Ásvöllum þegar Valsmenn koma í heimsókn hungraðir í stig eftir brösótt gengi að undanförnu.
Leikur í kvöld var fjörugur. Staðan í hálfleik var 18-18 sem segir sitt um jafnvægið á milli sóknar- og varnarleiks hjá báðum liðum. Haukaliðið átti í engum vandræðum með að spila sig í góð færi en reyndist erfitt að stöðva sóknarleik Fram, einkum Andra Berg Haraldsson sem fór mikinn í fyrri hálfleik. Sigurbergur Sveinsson og Freyr Brynjarsson fóru fyrir Haukaliðinu í fyrri hálfleik og skoruðu báðir mörg glæsileg mörk. Haukar höfðu áfram frumkvæðið lengst af seinni hálfleik og náðu m.a. þriggja og fjögurra marka forystu uns Fram náði að jafna metin 24-24 um miðbik hálfleiksins. Sóknarleikur Haukaliðsins riðlaðist nokkuð þegar Sigurbergur var tekinn út auk þess sem Magnús Erlendsson var erfiður við að eiga í markinu eins og svo oft áður á móti Haukum. Hinum megin á vellinum átti Haukavörnin í miklum vandræðum með Harald Þorvarðarson á línunni. Aron Rafn lét til sín taka í seinni hálfleik og varði mikilvæg skot. Mbl.is segir hann hafa varið 17 skot í leiknum, þar af 12 í þeim seinni.
Lokamínútur leiksins voru æsispennandi. Fram jafnaði 31-31 þegar þrjár mínútur voru til leiksloka. Sigurbergur Sveinsson skoraði þá mjög glæsilegt mark þegar hendin var komin upp. Aron Rafn varði síðan í næstu sókn Framliðsins og Guðmundur Árni Ólafsson skoraði 33. mark Hauka úr víti sem Tjörvi Þorgeirsson sótti en hann kom inná á lokamínútunum og stóð sig vel undir pressu. Guðjón Drengsson minnkaði muninn en allt kom fyrir ekki og enn einn eins-marka-sigurinn í hús.
Síðasti heimaleikur Haukastrákana fyrir páska fer fram á fimmtudaginn þegar Valsmenn koma í heimsókn eins og áður segir. Á laugardaginn taka svo stelpurnar á móti FH.