Haukastelpur úr leik í bikar eftir háspennuleik

Ester átti góðan leik fyrir HaukaDramatíkin ræður víðar ríkjum en á EM í Austurríki því tvær framlengingar þurfti til svo að úrslit réðust í leik Stjörnunnar og Hauka í átta liða úrslitum Eimskipsbikarkeppni kvenna í gærkvöldi. Haukastelpur spiluðu sinn besta leik á tímabilinu og voru grátlega nærri því að slá bikarmeistarana úr leik á eigin heimavelli. Þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma höfðu Haukar góða forystu en misstu hana niður og Ramune Pekarskyte tryggði þeim framlengingu með því að skora úr víti að loknum venjulegum leiktíma. Haukastelpur eiga því harma að hefna þegar þessi lið mætast á laugardaginn kl. 16 á Ásvöllum í N1 deildinni. 

Stjörnustúlkur tóku Ramune úr umferð nær allan leikinn en hún reif sig lausa á köflum og skoraði einnig grimmt úr annarri bylgju í hraðaupphlaupum þar sem mun meiri kraftur var í henni en reyndin hefur verið í undanförnum leikjum. Ester Óskarsdóttir stjórnaði sóknarleik Hauka með miklum ágætum og spilaði sinn langbesta leik til þessa. Þá kom Þórunn Friðriksdóttir mjög sterk inn í sóknarleik Haukanna, skoraði mikilvæg mörk og spilaði eins og þetta væri hennar hundraðasti úrslitaleikur. Heiða Ingólfsdóttir varði þó nokkra bolta á mikilvægum köflum í leiknum. Annars var það baráttan og sigurviljinn sem einkenndi leik Haukanna að þessu sinni og grátlegt að það skyldi ekki duga til í þetta skipti. Bæði lið voru orðin mjög þreytt í framlengingunum en Stjörnustúlkur náðu að innbyrða sigur 34-32.

Á laugardaginn mætast þessi sömu lið á nýjan leik í N1 deildinni. Þá fer leikurinn fram að Ásvöllum og hvetjum við Haukafólk til að fjölmenna. Í kjölfarið er hægt að skella sér á Eiðsmótið í Strandgötunni og sjá Haukar-Gróttu en að þeim loknum er tímabært að fara aftur á Ásvelli og horfa á Ísland – Danmörk á breiðtjaldi.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…