Ísfirðingar fóru með sigur af Ásvöllum

HaukarKFÍ og Haukar mættust í toppslag 1. deildar karla í gærkvöldi. Það lið sem færi með sigur af hólmi treysti stöðu sína á toppi deildarinnar og um leið sæti í úrvalsdeild.

Ágætis mæting var á Ásvelli í hörkuleik. Heimamenn voru sterkir framan af og leiddu í þriðja leikhluta með 11 stigum.

En frábær leikkafli hjá gestunum á síðustu 15 mínútum leiksins tryggði sigur og um leið toppsætið.

Stighæstur hjá Haukum var Landon Quick með 23 stig og þeir Helgi Björn Einarsson og Davíð Páll Hermannsson bættu 16 stigum við hvor.

Næsti leikur Hauka er gegn Hetti laugardaginn 6. febrúar.

Myndasafn úr leiknum á Karfan.is

Áfram Haukar