Mikilvægur sigur hjá 2. flokki

2. flokkur karla í handbolta lék sinn 3. leik á sex dögum í gærkvöldi en það var Hafnarfjarðarslagur gegn FH sem beið strákana.

Haukastrákarnir unnu mikilvægan sigur á Selfossi á Selfossi á föstudagskvöld 32–30 eftir að hafa verið fjórum mörkum undir þegar skammt lifði leiks. Sigur í leiknum í gær þýddi að annar mikilvægur sigur og tvö stig kæmu í hús í baráttunni um eitt af fjórum efstu sætunum í deildinni og þar með farseðil í úrslitakeppnina.

Haukar byrjuðu leikinn vel og voru snemma komnir með í góð tök á leiknum og um miðjan hálfleikinn var staðan orðin 10–5 Haukum í vil en þá misstu Hauka tvo menn útaf á skömmum tíma og náðu gestirnir að jafna fyrir hlé en staðan var þá 14–14.

Seinni hálfleikur byrjaði á því að gestinir voru með yfirhöndina en ekki var mikið skoraði í seinni hálfleik svo í stöðunni 18–19 tóku Haukastrákarnir við sér og snéru leiknum sér í hag og fyrr en varir var staðan orðin 21–18 og það sem eftir lifði leiks var mikil barátta í gangi en okkar strákar héldu þetta út og náðu að landa góðum og mikilvægum sigri 25-22.

Bestir í liði Hauka voru markmaðurinn Aron Rafn Eðvarðsson sem varði á þriðja tug skota þar á meðala vítakast þegar stutt var eftir og gestirnir hefðu getað jafnað metin. Einnig var Stefán Rafn Sigurmannsson góður í horninu og setti 8 mörk.

Markaskor Hauka í leiknum var þannig:

Stefán Rafn Sigurmannsson 8 mörk

Þórður Rafn Guðmundsson 4

Tjörvi Þorgeirsson 4

Guðjón Kristinn Helgason 4

Kristján Örn Arnarsson 3

Sigurður Guðjónsson 2

Eftir leikinn eru Haukar í 4. sæti með 21 stig úr 17 leikjum.

Næsti leikur drengjanna er á móti Stjörnunni þann 11. mars kl. 20:00 á Ásvöllum.