Haukadagur í Höllinni

Kári Kristján KristjánssonEins og fram hefur komið hér á síðunni fór fram í dag deildarbikar karla og kvenna í Laugardalshöll. Þar áttu Haukar tvo fulltrúa, eitt karlalið og eitt kvennalið. Það hefur áður komið fram á heimasíðunni að kvennaliðið er komið í úrslitaleikinn sem fram fer á morgun en liðið mætir þar liði Stjörnunnar sem sigraði Valsstelpur með einu marki í dag. Haukastrákarnir eru einnig komnir í úrslit eftir sigur í æsispennandi leik gegn Val og mæta þar liði Fram sem sigraði lið HK í hörkuleik.

 

Haukastrákarnir byrjuðu betur og skoruðu fyrsta markið og voru ávallt skrefi á undan fyrstu mínúturnar. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af leiknum tóku Valsmenn hins vegar við sér og náðu forystunni og héldu henni út fyrri hálfleikinn. Munurinn var þó aldrei mikill og var staðan í hálfleik 13 – 11, Val í vil.

 

Síðari hálfleikurinn þróaðist mjög svipað og sá fyrri. Haukastrákar komust ekki yfir fyrr en í stöðunni 18 – 17 en Valsmenn bitu frá sér og komust fljótlega marki yfir aftur. Þannig gengu síðustu 10 mínútur leiksins, liðin skiptust á að vera með forystuna og var síðasta mínútan æsispennandi. Staðan var 25 – 25 og rétt rúm mínútu eftir. Valsmenn höfðu boltann og tóku langa sókn. Þeir komu skoti á markið þegar um 30 sekúndur voru eftir en Birkir Ívar varði. Haukar brunuðu í sókn og fengu aukakast þegar 9 sekúndur voru eftir. Aron tók þá leikhlé og lagði á ráðin með strákunum. Freyr tók fríkastið, gaf boltann á Sigurberg sem gaf boltann yfir á Arnar Jón sem skoraði markið rétt í þann mund sem bjallan gall. Haukar fóru því með sigur af hólmi 26 – 25 og leika til úrslita gegn Fram sem sigraði HK í hörkuleik fyrr í dag.

Markahæstur í liði Hauka í dag voru Arnar Jón og Sigurbergur með 6 mörk hvor og varði Birkir Ívar 17 skot í markinu. Hjá Val var Arnór Gunnarsson markahæstur með 10 mörk og varði Ólafur Gíslason 12 skot í marki þeirra.

Það verður því sannkallaður Haukadagur í Höllinni á morgun. Stelpurnar leika til úrslita klukkan 13:30 og strákarnir klukkan 15:50. Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og styðja okkar fólk til sigurs. 

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Andlátsfrétt.

    Laugardaginn 13. júní síðastliðinn barst sú harmafregn að einn af öflugustu stuðningsmönnum Hauka, Guðjón Ágúst Sigurðarson, væri látinn. Guðjón og Herborg, eiginkona  hans, hafa starfað sem sjálfboðaliðar hjá handknattleiksdeild Hauka  áratugum saman og stuðningur þeirra við starf deildarinnar er ómetanlegt.  Guðjón sat í stjórn   handknattleiksdeildar Hauka um margra ára skeið, allt til dánardags. Við fráfall…

  • Lokahóf Hauka – Verðlaunahafar og kveðjur eftir tímabilið 2025–2026

    Handknattleiksdeild Hauka hélt lokahóf sitt í vikunni þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman og fögnuðu flottu tímabili. Fjölmargir einstaklingar voru heiðraðir fyrir frammistöðu sína og framlag til félagsins – og jafnframt kvöddum við nokkra leikmenn sem halda nú á ný mið eftir verðugt og mikilvægt starf í rauðu treyjunni. Verðlaunahafar tímabilsins Meistaraflokkur kvenna…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…