5.flokkur karla á móti á Akureyri

Um helgina fór 5.flokkur karla á Akureyri og spilaði þar á fyrsta Íslandsmóti vetrarins. Í fyrra urðu strákarnir sem nú spila í A liði Íslandsmeistarar B liða. Strákunum í A liðinu gekk mjög vel. Þeir unnu alla leiki sína í riðlakeppninni og voru því komnir í milliriðil. Þar léku þeir tvo leiki sem þeir unnu einnig. Þeir voru því komnir í úrslitaleikinn og léku þar gegn Fram. Haukastrákarnir sigruðu leikinn og því mótsmeistarar Sólarmótsins á Akureyri 2006. Það var margt gott í leik B liðsins. Þeir sigruðu tvo leiki í riðlakeppninni og töpuðu tveimur. Þeir féllu úr keppni á innbyrðis leik.