3.flokkur kvenna leikur í úrslitum um helgina

HaukarUm helgina fara fram úrslit í 3.flokki karla og kvenna í Austurbergi í Breiðholtinu. Þar verður leikið í undanúrslitum á laugardaginn og úrslitin verða síðan leikinn á sunnudaginn.

Þar eigum við Haukar, eitt lið en 3.flokks kvennaliðið mætir Deildarmeisturunum í Stjörnunni klukkan 14:00.

 

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast síðan HK og KA/Þór.

 

Haukar og Stjarnan mættust tvisvar sinnum í deildarkeppninni í vetur. Í fyrri leiknum fór Stjarnan með öruggan sigur að hólmi en í þeim seinni var heldur meiri spenna og réðust úrslitin á lokamínútunum, þar sem Stjarnan tryggði sér eins marks sigur.

Haukar sigruðu FH í 8-liða úrsitum 34-30 en Stjarnan sigraði ÍBV 34-22.

Í báðum liðunum eru mjög efnilegir leikmenn og til að mynda eru nokkrar unglingalandsliðsstelpur í liði Hauka og er þetta framtíðarleikmenn okkar Haukamanna.

Við hvetjum því Haukafólk til að fjölmenna í Austurbergið á morgun, ÁFRAM HAUKAR!