Hauka stelpur leika úrslitaleik

HaukarMeistarflokkur kvenna í knattspyrnu leika úrslitaleik í Lengjubikar kvenna B deild við ÍBV. Leikurinn fer fram nú á laugardag kl. 13:00 í Kórnum Kópavogi. Stelpurnar eru sem stendur efstar í riðlinum á markatölu með jafn mörg stig og ÍBV og FH, sem leika á föstudagskvöld innbyrðis. Með sigri í leiknum á laugardag  ættu Hauka stelpur að tryggja sér titilinn. Stelpurnar óska eftir stuðningi sem flestra á leiknum.