14 drengir æfa með yngri landsliðum Íslands í næstu viku

Það verður nóg að gera hjá okkar afreksstrákum í handboltanum næstu viku en þá verður landsliðsvika hjá strákunum. Við munum eiga 14 glæsilega fulltrúa sem munu æfa með yngri landsliðum Ísland. Við óskum þessum strákum að sjálfsögðu til hamingju með þennan áfanga og vonum að sjálfsöðgðu að þeir munu standa sig vel. U20 karla Grétar […]

Undanúrslit byrja í kvöld, miðvikudag, í Dominos deild kvenna.

Undanúrslit i Dominos deild kvenna byrja í kvöld, miðvikudaginn 30. mars, er Deildarmeistarar Hauka taka á móti Grindavík. Haukar eiga harma að hefna á móti Grindvíkingum en þær slógu Hauka út úr bikarnum og því má búast við að Haukaliðið mæti grimmar til leiks og vilji hefna ófaranna. Haukastelpur hafa verið á góðu skriði síðustu […]

Haukar deildarmeistarar 2016 í Olísdeild karla

Haukar eru deildarmeistarar í Olísdeild karla 2016. Strákarnir unnu góða sigur á Val í gær 32-31 en það var Tjörvi Þorgeirsson sem tryggði okkur sigurinn með frábæru marki á loka sekúndunum. Það er óhætt að segja að veturinn hafi verið góður hjá okkar strákum og enda þeir með 47 stig eftir 27 leiki. Þeir hafa […]

Olísdeildin tvíhöfði í kvöld

Það verður mikið um dýrðir í Schenkerhöllinni á þriðjudaginn, 29. mars. Þá bjóða DB Schenker og VHE frítt inn á leiki meistaraflokka Hauka í handbolta þegar þeir fá Val í heimsókn. Það eru stelpurnar sem hefja leik kl. 18:15 en þær hafa mætt Val tvisvar sinnum í vetur. Valsstúlkur unnu fyrri deildarleik liðanna í vetur […]

Vel heppnaðar körfuboltabúðir Hauka í dymbilvikunni

Mikið stuð var á körfuboltabúðum Hauka í dymbilvikunni. Búðirnar voru fyrir krakka á aldrinum 6 – 12 ára og mættu rúmlega 70 krakkar. Búðirnar heppnuðust gríðarlega vel og stóðu allir krakkarnir sig mjög vel og var gaman að fylgjast með körfuboltaáhuganum. Hægt er að horfa á skemmtilegt video úr búðunum, sem Auður Íris leikmaður mfl. […]

Sterkur liðssigur Hauka og staðan 2-1

Haukarnir mættu Þór í þriðja sinn í 8 liða úrslitum Dominos deildarinnar í gærkvöldi og unnu sanngjarnan 9 stiga sigur, 84-75 Liðsheildin var frábær í gær og var alveg sama hver var að spila, allir spiluðu með miklu sjálfstrausti og voru ákveðnir bæði varnarlega og sóknarlega. Lið varð fyrir enn einum skakkaföllunum í gær, en […]

Knatthús á Ásvöllum árið 2017?

Knattspyrnudeild Hauka hefur stefnt að því leynt og ljóst síðustu 3 árin að láta knatthús á Ásvöllum verða að veruleika sem allra fyrst. Nú hefur verið hrint af stað undirskriftarsöfnun þar sem bærinn er hvattur til að gera samning við Hauka sambærilegan og gerður var við rekstrarfélagið sem á og rekur Risann upp á Kaplakrika svo […]

Haukar – Þór á Skírdag kl. 19:15

Þriðji leikur Hauka – Þórs Þorlákshafnar verður í dag, skírdag kl. 19:15 í Schenkerhöllinni. Staðan er 1 – 1, en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst áfram i undanúrslit. Báðir leikirnir hafa unnist á útivelli og hafa leikirnir verið hin besta skemmtun. Leikurinn í kvöld er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en Haukarnir […]